Gagnasérfræðingur – gögn og gervigreind at Ljósleiðarinn | SheCodes
All jobs

Ljósleiðarinn

Gagnasérfræðingur – gögn og gervigreind

  • Location: Reykjavík, Iceland
  • Work mode: On-site
  • Contract: Full Time
  • Level: Mid-level
Data AI Automation Data quality

Posted November 13, 2026 Verified by SheCodes, apply link checked about 2 hours ago

In short

Ljósleiðarinn is seeking an experienced data specialist to build robust data infrastructure and leverage AI for decision-making. You will ensure data quality and accessibility while developing analytical and predictive models.

What they ask for

  • 5+ years of data processing experience
  • Strong skills in Python and SQL
  • Experience with AI solutions implementation
  • Ability to lead projects independently
  • Excellent analytical and communication skills

What they offer

  • Challenging projects
  • Supportive work environment
  • Opportunities for growth

Summarised by AI from the full description below.

Viltu breyta gögnum í forskot framtíðarinnar?

Ljósleiðarinn býr yfir verðmætum gögnum um tengingar, notkun, rekstur og uppbyggingu ljósleiðaranetsins um allt land. Markviss nýting þessara gagna eykur skilvirkni, eflir þjónustu og styður við gagnadrifna ákvarðanatöku.

Við leitum að reyndum gagnasérfræðingi með góða þekkingu á gervigreind sem vill byggja upp trausta gagnainnviði og skapa úr þeim verðmæti. Þú munt vinna með gögn frá grunni, tryggja gæði þeirra og aðgengi og þróa leiðir til að nýta þau betur í starfsemi fyrirtækisins, meðal annars með gervigreind og sjálfvirknivæðingu.

Þetta er tækifæri fyrir gagnasérfræðing sem vill sameina tæknilega þekkingu, greiningarhæfni og nýsköpun. Þú verður hluti af teymi Viðskiptaþróunar og hefur raunveruleg áhrif á hvernig Ljósleiðarinn nýtir gögn og nýja tækni til að þróa reksturinn og þjónustu við viðskiptavini.

Helstu verkefni

  • Byggja upp og viðhalda gagnainnviðum, tryggja gæði gagna og gera þau aðgengileg til greininga og ákvarðanatöku.
  • Þróa greiningar- og spálíkön sem styðja við rekstur og uppbyggingu Ljósleiðarans.
  • Greina tækifæri og þróa hagnýtar gervigreindarlausnir, meðal annars með notkun mállíkana (LLM).
  • Leiða þróun lausna frá hugmynd til innleiðingar og meta árangur þeirra.
  • Starfa þvert á fyrirtækið að því að nýta gögn til að bæta þjónustu og auka skilvirkni.
  • Stuðla að öruggri og ábyrgri notkun gagna og gervigreindar.

Hæfniskröfur

  • Minnst 5 ára reynsla af gagnavinnslu, gagnagreiningu eða líkanagerð.
  • Mjög góð færni í Python og SQL.
  • Reynsla af þróun og innleiðingu gervigreindarlausna í rekstri, til dæmis með vélnámi eða mállíkönum (LLM).
  • Reynsla af því að leiða verkefni sjálfstætt frá hugmynd til innleiðingar.
  • Rík greiningarhæfni, frumkvæði og hæfni til að tengja tæknilegar lausnir við þarfir starfseminnar.
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni.
  • Háskólamenntun í tölvunarfræði, verkfræði, stærðfræði, tölfræði, gagnavísindum eða skyldum greinum.

Það er kostur ef þú hefur

  • Reynslu af Azure OpenAI, Azure AI Foundry, Microsoft Fabric eða Power BI.
  • Reynslu af RAG-lausnum, gervigreindarþjónum (AI agents), API-samþættingum eða MLOps.
  • Þekkingu á gagnaöryggi, persónuvernd og regluverki um gervigreind.

Hvers vegna Ljósleiðarinn?

Ljósleiðarinn byggir upp og rekur ljósleiðaranet fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir. Með þéttu neti ljósleiðaraþráða tryggir Ljósleiðarinn hraðan, öruggan og hnökralausan aðgang að tækifærum framtíðarinnar.

Þannig gerum við allt mögulegt mögulegt. Hjá okkur færðu tækifæri til að takast á við krefjandi og spennandi verkefni í ört vaxandi umhverfi ásamt því að vaxa og þróast innan fyrirtækisins.

Hvernig vinnustaður er Ljósleiðarinn? (kynningarmyndband)

Ljósleiðarinn er hluti af Orkuveitunni þar sem við bjóðum upp á fjölbreytt og stuðningsríkt vinnuumhverfi þar sem áhersla er lögð á framsýni, hagsýni, heiðarleika og frumkvæði. Rannsóknir hafa sýnt að fjölbreytileiki leiðir til betri árangurs og við hvetjum öll sem uppfylla grundvallarskilyrði starfsins og hafa ástríðu til að vinna hjá Ljósleiðaranum til að sækja um, óháð því hvort þau haki í öll boxin.

Umsóknarfrestur er til og með 29.nóvember 2026

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Pétur, Leiðtogi Sölu og viðskiptaþróunar [email protected]

  • Job ID 10686
  • Listed on SheCodes Jobs on November 13, 2026
  • Apply links checked daily
  • Report this job

Similar jobs

Rwazi Decision Research Scientist Global · Remote Rwazi AI Engineer – Marketing & GTM Systems Global · Remote Renmoney Portfolio Analyst Russia · Remote

Interested in this role?

You'll apply directly on the company's site.

Apply on company site

Opens jobs.50skills.com in a new tab

Prepare with AI Practice this role's interview questions with SheCodes Athena
Posted
November 13, 2026
Link checked
About 2 hours ago
Open until
December 25, 2026

Build the skills for this job

This role asks for skills you can learn with SheCodes:

AI
SheCodes Plus AI SheCodes Python AI See all workshops
Gagnasérfræðingur – gögn og gervigreind Ljósleiðarinn
Apply