Posted November 28, 2026 Verified by SheCodes, apply link checked today
In short
Innnes is seeking a project manager to lead the development and sales of meat and fish product categories. The role involves building relationships with suppliers and key clients while identifying market opportunities.
What they ask for
- Good knowledge of meat and/or fish
- Experience in the food industry
- Strong communication skills
- Fluent in Icelandic and English
What they offer
- Interesting and diverse work
- Direct impact on product development
- Strong work environment
Summarised by AI from the full description below.
Innnes leitar að öflugum verkefnastjóra í að leiða uppbyggingu og sölu í kjöt- og fiskvöruflokkum fyrirtækisins. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf þar sem sérfræðiþekking, samskipti við erlenda og innlenda birgja og náin tengsl við lykilviðskiptavini fara saman.
Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að þróa vöruflokkana áfram, finna ný viðskiptatækifæri og skapa aukið virði fyrir viðskiptavini fyrirtækisins.
Innnes er ein stærsta og öflugasta heildsala landsins á sviði matvöru og eru vörumerki fyrirtækisins neytendum vel kunnug. Helstu viðskiptavinir Innnes eru stærstu matvöruverslanir landsins, hótel, veitingastaðir, mötuneyti, skólar o.fl. Hjá Innnes starfa yfir 200 manns.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með og uppbyggingu kjöt- og fiskvöruflokka Innnes.
- Vera leiðandi sérfræðingur innan fyrirtækisins í viðkomandi vöruflokkum og miðla þekkingu til söluteyma.
- Byggja upp og viðhalda sterkum tengslum við innlenda og erlenda birgja.
- Greina markaðstækifæri, þróa vöruframboð og vinna að innleiðingu nýrra vara.
- Vera í nánu samstarfi við lykilviðskiptavini, skilja þarfir þeirra og þróa lausnir sem mæta væntingum þeirra.
- Vinna að söluaukningu á kjöti og fiski, samhliða öðrum vörum úr vöruúrvali Innnes.
- Fylgjast með þróun markaðarins, verðþróun og nýjungum.
- Taka þátt í áætlanagerð, söluáætlunum og innkaupum í samstarfi við viðeigandi deildir.
- Fylgja eftir gæðum, þjónustu og úrlausn mála sem upp kunna að koma í tengslum við vörurnar.
Menntun, reynsla og hæfni
Við leitum að einstaklingi sem hefur:
- Góða þekkingu og áhuga á kjöti og/eða fiski.
- Reynsla úr matvælageiranum, sölu, innkaupum eða vörustjórnun er kostur.
- Hæfni til að byggja upp og viðhalda góðum viðskiptasamböndum.
- Sterka samskiptahæfileika og þjónustulund.
- Viðskiptavit, frumkvæði og drifkraft til að ná árangri.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Góða tölvukunnáttu.
- Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
Verkefnastjóri heyrir undir framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs hjá Innnes.
Við bjóðum
Áhugavert og fjölbreytt starf hjá einni stærstu og öflugustu heildsölu landsins á sviði matvöru og drykkja. Tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun og uppbyggingu þessa vöruflokka
Öflugt starfsumhverfi þar sem frumkvæði, þekking og árangur fá að njóta sín.
Gildi félagsins eru Gleði og fagmennska. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu félagsins www.innnes.is
Innnes hvetur alla, óháð kyni, til að sækja um. Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að senda inn umsókn ásamt ferilskrá á vef Innnes.
Umsóknarfrestur er til 3. desember 2026
Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál. Fyrirspurnum er varða starfið veitir Leifur Örn Leifsson, Framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs í tölvupósti [email protected]
Hlökkum til að heyra frá þér!
Similar jobs
Scopic
Remote People Ops Intern – Internship Program
LILT
Voice Talent Required - Czech (female)
LILT
Voice Talent Required - Korean (female)
Interested in this role?
You'll apply directly on the company's site.
Apply on company siteOpens jobs.50skills.com in a new tab
- Posted
- November 28, 2026
- Link checked
- Today
- Open until
- December 28, 2026