Forritari gervigreindarlausna hjá KPMG Law
Posted November 28, 2026 Verified by SheCodes, apply link checked today
In short
The role involves designing, developing, and implementing AI solutions for KPMG Law and its clients. You will analyze needs, create prototypes, and ensure secure daily usage of these solutions.
What they ask for
- University degree in Computer Science or related field
- Good programming skills and software development experience
- Ability to analyze needs and implement solutions
- Fluent in Icelandic and English
What they offer
- Diverse and challenging projects
- Flexible work environment
- Health and wellness support
- Paid day for volunteering
- First-class cafeteria
Summarised by AI from the full description below.
Viltu breyta snjöllum hugmyndum í hagnýtar gervigreindarlausnir?
Við leitum að lausnamiðuðum sérfræðingi til að hanna, þróa og innleiða gervigreindar- og tæknilausnir fyrir KPMG Law og viðskiptavini okkar. Þú munt greina þarfir, þróa frumgerðir og færa lausnir frá hugmynd yfir í örugga og skalanlega daglega notkun.
Þú munt vinna náið með sérfræðingum KPMG á Íslandi, Norðurlöndum og innan alþjóðlegs tengslanets okkar. Starfið veitir einstakt tækifæri til að hafa áhrif á hvernig gervigreind er nýtt í skatta- og lögfræðiþjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hanna, þróa og innleiða gervigreindar- og tæknilausnir fyrir KPMG Law og viðskiptavini.
- Greina þarfir notenda og umbreyta þeim í hagnýtar, endurnýtanlegar og skalanlegar lausnir.
- Þróa og prófa frumgerðir með notendum og færa þær yfir í örugga daglega notkun.
- Vinna með stór mállíkön, API tengingar, sjálfvirknivæðingu og samþættingu við núverandi kerfi.
- Innleiða stafrænan vettvang (e.platform) KPMG Global fyrir skatta og lögfræðiþjónustu hjá viðskiptavinum.
- Tryggja ábyrga notkun gervigreindar með hliðsjón af upplýsingaöryggi, persónuvernd og áhættustýringu.
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, verkfræði, gagnavísinda, upplýsingatækni eða sambærilegu sviði sem nýtist í starfi.
- Góð forritunarkunnátta og reynsla af hugbúnaðarþróun, sjálfvirknivæðingu og þróun stafrænna lausna.
- Reynsla og þekking af því að vinna innan regluvædds og alþjóðlegs umhverfis er kostur en ekki skilyrði.
- Hæfni til að greina þarfir og færa lausnir frá hugmynd og frumgerð yfir í örugga og nothæfa innleiðingu.
- Góð samskipta og samstarfshæfni ásamt getu til að útskýra tæknileg atriði á skýran hátt fyrir ólíkum hópum.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og hæfni til að vinna vel í þverfaglegu teymi.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við allt áhugasamt fólk til að sækja um óháð kyni.
KPMG Law ehf.
KPMG Law er sérhæfð lögmannsstofa í alþjóðlegu samstarfi KPMG og ein af leiðandi stofunum á sviði fyrirtækjalögfræði á Íslandi. Við höfum vaxið hratt á undanförnum árum og í dag starfa hjá okkur á fjórða tug lögmanna, lögfræðinga og sérfræðinga. Við leggjum ríka áherslu á að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu og bjóðum upp á frábær tækifæri fyrir metnaðarfullt fólk til starfsþróunar í sveigjanlegu og fjölbreyttu vinnuumhverfi. Við störfum náið með öðrum sérfræðingum KPMG innanlands sem og erlendis sem gerir okkur kleift að veita heildstæða þjónustu á breiðum grunni, hvort sem er á sviðum lögfræði, fjármála eða rekstrar. Sérfræðingar okkar þekkja lögin og skilja áhrif þeirra á rekstur.
Stafrænar lausnir í lögfræði (Legal Tech) hafa verið ein af lykiláherslum okkar undanfarin ár og verða það áfram til framtíðar.
Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG Law
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni með raunveruleg áhrif.
- Öflug tækifæri til starfsþróunar og samstarfs við sérfræðinga KPMG hér á landi og erlendis.
- Sveigjanlegt vinnuumhverfi og möguleiki á að vinna frá mismunandi starfsstöðvum og að heiman þegar við á.
- Heilsueflandi vinnustaður með líkamsræktarstyrk, samgöngustyrk og KPMGfit æfingum.
- Fyrsta flokks mötuneyti í Borgartúni með fjölbreyttu og hollu fæði.
- Stuðningur við andlega heilsu í gegnum Kara velferðartorg.
- Stuðningsúrræði og styrkur fyrir verðandi og nýbakaða foreldra.
- Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
- Og margt fleira.
Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember 2026.
Umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fyllt út á heimasíðu KPMG (sækja um hér til hliðar).
Nánari upplýsingar veitir Hildur Steinþórsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum, í [email protected] og Ævar Hrafn Ingólfsson Senior Manager hjá KPMG Law í [email protected]
Similar jobs
HMS (Húsnæðis- og mannvirkjastofnun)
Sérfræðingur í fasteignamati og þróun matsaðferða (Property Valuation Specialist)
Eqvilent
ML Engineer
Eqvilent
Analyst (Exchanges)
Interested in this role?
You'll apply directly on the company's site.
Apply on company siteOpens jobs.50skills.com in a new tab
- Posted
- November 28, 2026
- Link checked
- Today
- Open until
- December 28, 2026
Know someone for this role?
Build the skills for this job
This role asks for skills you can learn with SheCodes: