Sérfræðingur í fasteignamati og þróun matsaðferða (Property | SheCodes
All jobs

HMS (Húsnæðis- og mannvirkjastofnun)

Sérfræðingur í fasteignamati og þróun matsaðferða (Property Valuation Specialist)

  • Location: Reykjavík, Iceland
  • Work mode: On-site
  • Contract: Full Time
  • Level: Mid-level
Data Analysis Valuation Real Estate Statistics

Posted November 28, 2026 Verified by SheCodes, apply link checked today

In short

The Property Valuation Specialist will participate in the implementation of new property valuation methods and annual property reassessments at HMS in Iceland.

What they ask for

  • Education in engineering, business, or economics
  • Experience in property market or valuation
  • Strong analytical skills
  • Fluent in Icelandic

Summarised by AI from the full description below.

VILT ÞÚ STARFA Á VINNUSTAÐ SEM LEGGUR ÁHERSLU Á FRAMÚRSKARANDI ÞJÓNUSTU OG ÁRANGURSDRIFIÐ VINNUUMHVERFI?

HMS vinnur að undirbúningi á breytingum á fasteignamati stórra og flókinna mannvirkja á Íslandi svo sem atvinnuhúsnæðis og orkumannvirkja, í samræmi við áherslur stjórnvalda. HMS fer með yfirstjórn fasteignaskráningar á Íslandi en fyrirhuguð er endurskoðun á lögum nr. 6/2001, um skráningu, merki og mat fasteigna.

HMS býður upp á árangursdrifinn vinnustað með skýr markmið, stefnu og mælikvarða sem hjálpa okkur að vinna saman og ná lengra. Þú færð tækifæri til að leggja þitt af mörkum í verkefnum sem  skipta sköpum fyrir samfélagið.

Við leitum af drífandi einstaklingi sem hefur áhuga á að gegna lykilhlutverki í verkefnum sem tengjast framkvæmd og þróun fasteignamats, endurskoðun matsaðferða í teymi fasteignamats og skráninga hjá HMS. Viðkomandi  þarf að hafa brennandi áhuga á fasteignamarkaðinum, vera töluglöggur og hafa þekkingu á tölfræðilegri vinnslu. Við hvetjum fólk með fjölbreytta menntun og bakgrunn til að sækja um starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í innleiðingu nýrra matsaðferða fyrir fasteignamat
  • Árlegt endurmat fasteigna í samráði við teymisstjóra
  • Tryggja tímanlega afgreiðslu endurmatsbeiðna, gerð vandaðs rökstuðnings og góða þjónustu við fasteignaeigendur
  • Miðla forsendum og niðurstöðum fasteignamats til hagaðila og helstu viðskiptavina
  • Mat og skoðanir á fasteignum
  • Önnur verkefni samkvæmt ákvörðun yfirmanns

Hæfnikröfur

  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi s.s. í verkfræði, viðskiptafræði, hagfræði, stærðfræði eða öðrum greinum
  • Þekking og reynsla af fasteignamarkaði, matstörfum, gagnagreiningum eða gerð tölfræðilegri líkana er kostur
  • Frumkvæði, drifkraftur, sjálfstæði og vönduð vinnubrögð
  • Jákvætt og lausnamiðað hugarfar
  • Mikil færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku

Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi fyrir starfið.

Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum.

HMS leggur áherslu á fjölbreytni og hvetur öll áhugasöm til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar

Tryggvi Már Ingvarsson, framkvæmdastjóri fasteignasviðs – [email protected]

Elín Dögg Ómarsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum – elin.omarsdó[email protected]

  • Job ID 22190
  • Listed on SheCodes Jobs on November 28, 2026
  • Apply links checked daily
  • Report this job

Similar jobs

KPMG Iceland Forritari gervigreindarlausna hjá KPMG Law Reykjavík, Iceland · On-site · Mid-level Eqvilent ML Engineer Worldwide · Remote Eqvilent Analyst (Exchanges) Worldwide · Remote

Interested in this role?

You'll apply directly on the company's site.

Apply on company site

Opens jobs.50skills.com in a new tab

Prepare with AI Practice this role's interview questions with SheCodes Athena
Posted
November 28, 2026
Link checked
Today
Open until
December 28, 2026
Sérfræðingur í fasteignamati og þróun matsaðferða (Property Valuation Specialist) HMS (Húsnæðis- og mannvirkjastofnun)
Apply